Slökkt í bílskúr

Eldurinn var slökktur á sjö mínútum.
Eldurinn var slökktur á sjö mínútum. mbl.is

Eldur kom upp í bílskúr við fjölbýlishúsið að Laugavegi 128 í morgun. Slökkviliðið slökkti eldinn á nokkrum mínútum. Reykræsta þurfti stigagang í fjölbýlishúsinu.

Slökkviliðið fékk tilkynningu um eldinn rétt fyrir klukkan 11 í morgun. Bílskúrinn er frístandandi og logaði hann allur. Tók stuttan tíma að slökkva.

Bílskúrinn er steinsteyptur og stendur eftir en er illa farinn. Í honum var ekki bíll en talsvert af dóti.

Eldsupptök eru í rannsókn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert