Starfsfólk hrognavinnslu Vignis G. Jónssonar á Akranesi fær áður umsamdar launahækkanir samkvæmt ákvörðun stjórnenda fyrirtækisins. Formaður Verkalýðsfélags Akraness segist taka ofan fyrir þessu rótgróna fjölskyldufyrirtæki en um 30 manns starfa nú hjá fyrirtækinu.
Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness segist í morgun hafa haft samband við nokkur fyrirtæki vegna þeirrar ákvörðunar HB Granda að koma strax með áður umsamdar launahækkanir til handa starfsfólki. Hann segir a.m.k. eitt fyrirtækjanna vera að skoða hvort það muni flýta áður umsömdum launahækkunum til handa starfsmönnum og mun niðurstaða í því máli liggja fyrir innan örfárra daga. Þá munu fyrirtæki víðar á landinu vera að íhuga greiðsalu umsaminna launahækkana frá og með 1. mars.
„Það er skemmst frá því að segja að þegar að haft var samband við hrognavinnslu Vignis G. Jónssonar á Akranesi þá var formanni tjáð að fyrirtækið hefði tilkynnt starfsmönnum sínum í síðustu viku að áður umsamdar launahækkanir myndu taka gildi frá og með 1. mars sl. eins og samningar kváðu á um,“ segir Vilhjálmur Birgisson.
Hann segir ljóst að þessi ákvörðun forsvarsmanna fyrirtækisins um launahækkun muni koma því góða starfsfólki sem þar starfar klárlega til góða.
Stjórn Verkalýðfélags Akraness vill halda áfram að skora á öll fyrirtæki sem hafa fjárhagslega burði til að standa við áður umsamdar launahækkanir, að láta þær taka gildi strax. Ljóst sé að þau fyrirtæki sem standa vel séu að svara kalli Verkalýðsfélags Akraness um að standa við þann samning sem gerður var 17. febrúar 2008 og ljóst að sú mikla vinna sem félagið hefur lagt í þessi mál sé að skila árangri, íslensku verkafólki til hagsbóta.