Landsvirkjun styður HA áfram

Þorstein Gunnarsson rektor HA, Axel Björnsson, Hrefnu Kristmannsdóttur og Friðrik …
Þorstein Gunnarsson rektor HA, Axel Björnsson, Hrefnu Kristmannsdóttur og Friðrik Sophusson forstjóri Landsvirkjunar. mbl.is

Háskólinn á Akureyri og Landsvirkjun hafa undirritað samstarfssamning um rannsóknir. Samningurinn er framlenging á fyrri samningi sem var upprunalega gerður í apríl 2001 og framlengdur 2007.

Markmið samningsins er að efla grunnrannsóknir á þeim fagsviðum er tengjast rannsóknum og nýtingu á orkulindum landsins og áhrifum hennar á samfélag og umhverfi. Það verður gert með því að styrkja kennslu og rannsóknir við Háskólann á Akureyri.

Árlegt framlag Landsvirkjunar til háskólans nemur einu stöðugildi prófessors og á móti kemur árlegt vinnuframlag sérfræðinga Háskólans við rannsóknarverkefni og sérfræðistörf fyrir Landsvirkjun.

Meðal verkefna sem sérfræðingar Háskólans á Akureyri hafa unnið að undanfarið og munu vinna á næstunni í tengslum við samninginn eru:

·         Gerð áhættumats fyrir Landsvirkjun vegna fyrirhugaðra virkjunarframkvæmda fyrirtækisins á háhitasvæðunum á norðausturlandi undir stjórn Axels Björnssonar prófessors.

·         Úttekt á grunnvatni og afrennsli grunnvatns frá Þeistareykjum og Gjástykki undir stjórn Hrefnu Kristmannsdóttur prófessors. Sú úttekt verður liður í almennu umhverfismati vegna fyrirhugaðra virkjana.

Áformuð eru frekari samstarfsverkefni í tengslum við virkjun háhitasvæðanna á norðausturlandi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert