Skartgripaþjófurinn handtekinn

Lögreglan á höfðuðborgarsvæðinu handtók í morgun mann, sem grunaður hefur verið um þjófnaði úr skartgripaverslunum undanfarna daga. Ábendingar bárust frá fólki strax eftir að fjölmiðlar birtu myndir af viðkomandi fyrir helgina. Maðurinn hefur viðurkennt aðild.

Þegar unnið var úr vísbendingunum beindist athyglin að tilteknum manni er kom heim og saman við fyrirliggjandi upplýsingar.

Hann hefur viðkennt aðild að brotunum og gefið skýringu á tilefni þeirra. Maðurinn verður yfirheyrður nánar í dag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert