Tveir sóttu embætti prests í Seljaprestakalli í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra en frestur til að skila inn umsóknum rann út 17. mars. Embættið er veitt frá 1. apríl næstkomandi en biskup Íslands skipar í embættið til fimm ára að fenginni umsögn valnefndar.
Umsækjendur eru: sr. Hans Markús Hafsteinsson og sr. Ólafur Jóhann Borgþórsson.
Valnefnd skipa níu manns úr prestakallinu ásamt prófasti Reykjavíkurprófastsdæmis eystra.