Þingeyska kúamjólkin virðist vera sú besta á landinu, ef marka má verðlaun sem kúabændum voru veitt í síðustu viku fyrir úrvalsmjólk. Mjólkin þarf að uppfylla ákveðna gæðastaðla til að geta talist af úrvalstegund, en af 746 kúabúum í landinu stóðust 32 gæðakröfurnar.
Gæðakröfurnar eru nánar tiltekið þær að margfeldismeðaltal frumutölu fari ekki yfir 220.000 í hverjum mánuði og að margfeldismeðaltal líftölu fari ekki yfir 40.000 í hverjum mánuði. Standist mjólkuframleiðendur þetta í heilt almanaksár telst mjólkin þeirra vera af bestu gerð og eru verðlaunin veitt til að viðurkenna þá framleiðslu.
Á fréttasíðu Þingeyjarsveitar kemur fram að af þeim 32 kúabúum sem uppfylltu gæðamatið voru 18 á norðausturlandi og þar af hvorki meira né minna en 10 í Þingeyjarsýslu og má því leiða að því líkum að besta mjólkin á landinu fáist þaðan.
Eftirtaldir kúabændur stóðust kröfur fyrir úrvalsmjólk í Þingeyjarsýslu.
Fagranesbúið Fagranesi
Félagsbúið Hjarðarbóli Hjarðarbóli
Félagsbúið Arndísarstöðum Arndísarstöðum
Ólafur og Friðrika Bjarnarstöðum
Ingvar og Bergljót Halldórsstöðum
Ingjaldsstaðabú ehf. Ingjaldsstöðum
Kristján og Hrefna Árlandi
Baldvin og Sigurborg Engihlíð
Sigtryggur Garðarsson Reykjavöllum
Jón Helgi og Unnur Víðiholti
Eftirtalin kúabú í Eyjafirði fengu verðlaun fyrr úrvalsmjólk 2008
Jóhann Tryggvason Vöglum
Félagsbúið Espihóli Espihóli
Félagsbúið Villingadal Villingadal
Hlynur og Linda Akri
Leifur og Þórdís Klauf
Þríhyrningur ehf. Þríhyrningi
Gunnsteinn og Dagbjört Sökku
Sveinn og Steinunn Elfa Melum