Lögreglan í Vestmannaeyjum rannsakar nú kæra vegna meintrar nauðgunar sem sögð er að átt hafi sér stað aðfaranótt 22. mars. Að sögn lögreglu liggja málsatvik ekki ljós fyrir en skýrsla hefur verið tekin af konunni, sem kærði, og karlmanni sem var kærður.
Fram kemur á vefnum að kærandinn sé um fertugt en meintur árásarmaður sé um þrítugt.
Lögreglan í Vestmannaeyjum nýtur aðstoðar rannsóknardeildar lögreglunnar á Selfossi við rannsókn málsins.