Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar, verður eini fulltrúi Íslands á þingi Alþjóðaþingmannasambandsins í Addis Ababa í Eþíópíu. Ágúst fer út 4. apríl ásamt Örnu Bang alþjóðaritara og koma þau aftur 10. apríl, að sögn Örnu.
Skorið hefur verið niður um tugmilljónir á alþjóðasviði Alþingis á þessu ári og segir Arna að vel hafi tekist til með að halda ferðakostnaði í skefjum.