Einu þríburarnir á Selfossi áttu 17 ára afmæli í vikunni og
fengu þar með ökuskírteini sín í hendur. Þetta er þau Einar Guðni,
Brynja Dögg og Þórey Jóna Guðjónsbörn, sem áttu afmæli 24. mars, að því er kemur fram í Dagskránni, sem gefin er út á Selfossi.
Þríburarnir lærðu á bíl hjá Eyvindi Bjarnasyni, ökukennara úr Hveragerði. Þórey er búin að kaupa sér bíl en þau Einar og Brynja stefna á slíka fjárfestingu á næstunni.
Að sögn Dagskrárinnar mættu systkinin saman á lögreglustöðina á Selfossi um miðnætti á mánudagskvöld þar sem þau fengu bráðabirgðaskírteinin
sín.