Finninn Kaarlo Jännäri, sem lagt hefur mat á lagaumhverfi og framkvæmd fjármálaeftirlits á Íslandi, segist gera ráð að íslenskt bankakerfi í framtíðinni verði mjög ólíkt því gamla. Bankarnir verði venjulegir viðskiptabankar á íslenskum innanlandsmarkaði. Þá telur Jännäri, miklar líkur á að Ísland gangi í Evrópusambandið og taka upp evru á næstu fimm árum.
„Um efnahagsumhverfið á Íslandi í framtíðinni er erfitt að spá en ég tel miklar líkur á, að Ísland muni ganga í ESB og taka upp evru á næstu fimm árum eða svo. Það myndi leysa það vandamál, sem er lítill og óstöðugur gjaldmiðill. Áður en að því kemur verður þó að takast á við verðtrygginguna og hlutverk Íbúðalánasjóðs," segir Jännäri í skýrslu sinni, sem hann kynnti í dag.
Jännäri segist telja, að hrun íslenska bankakerfisins megi rekja til
fjölda þátta sem hægt væri að lýsa sem blöndu af lökum
bankarekstri, rangri stefnu og óheppni.
Jännäri var einkum beðinn um að meta regluverk varðandi lausafjárstýringu, lán til tengdra aðila, stórar stöðutökur, krosseignarhald og loks mat á hæfi eigenda og stjórnenda. Samkomulag varð um að matsskýrslan yrði gert opinber og skyldi vera tilbúin í lok mars 2009.
Skýrslan hefst á yfirliti þar sem lýst er stofnanalegri umgjörð reglusetningar og eftirlits á sviði fjármálastarfsemi á Íslandi, síðan er sagt frá kreppunni og aðdraganda hennar, þar næst er lýsing á meginþáttum þeirra sviða sem matið fjallar einkum um, auk þess er hugað að fáeinum atriðum sem skipta máli í tengslum við matið. Í lokakaflanum má finna niðurstöður og helstu ráðleggingar varðandi framtíðina.
Helstu tillögur Jännäri um framtíðarskipan mála eru þessar:
Kaarlo Jännari var forstjóri finnska fjármálaeftirlitsins í 11 ár, einn af yfirmönnum finnska seðlabankans um tíma og hefur einnig reynslu af rekstri einkabanka eftir að hafa verið stjórnarformaður og framkvæmdastjóri SKOP-bankans 1991 – 1993, árin sem bankakreppan var hvað dýpst í Finnlandi. Hann hefur m.a. verið Alþjóðagjaldeyrissjóðnum til ráðgjafar og sinnt nefndar- og stjórnarstörfum fyrir OECD og evrópska seðlabankann.