ASÍ vill siðareglur um lífeyrissjóði

Gylfi Arnbjörnsson setur aukaársfund ASÍ 25. mars sl.
Gylfi Arnbjörnsson setur aukaársfund ASÍ 25. mars sl. mbl.is/RAX

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands telur nauðsynlegt að settar verði siðareglur um fjárfestingar lífeyrissjóða og fyrirmyndareglur um daglega starfsemi þeirra, þ.m.t. starfskjör, gjafir, risnu og ferðalög, og þær verði kynntar fyrir ársfundi lífeyrissjóðanna.

Í framhaldi af samþykktum aukaársfundar ASÍ í síðustu viku og í ljósi þeirrar umræðu og gagnrýni sem verið hefur í fjölmiðlum undanfarið vill miðstjórn ASÍ árétta að hún lítur á það sem mikilvægt verkefni verkalýðshreyfingarinnar að taka af mikilli festu og ábyrgð á þeim álitamálum og gagnrýni sem upp hefur komið.

Þetta vill miðstjórn ASÍ gera með eftirfarandi hætti:

  • Óska eftir því að Fjármálaeftirlitið kanni sérstaklega hvort lífeyrissjóðir hafi á undanförnum árum starfað eftir lögum, samþykktum og fjárfestingarstefnu. Jafnframt verði sérstök úttekt gerð á uppgjöri sjóðanna vegna ársins 2008 með hliðsjón af áhrifum fjármálakreppunnar á verðmæti eigna.
  • Lífeyrisnefnd ASÍ og skipulags- og starfsháttarnefnd ASÍ setji fram eins fljótt og verða má tillögur að siðareglum um fjárfestingar sjóðanna og fyrirmyndareglur um daglega starfsemi þeirra, þ.m.t. starfskjör, gjafir, risnu og ferðalög, og þær verði kynntar fyrir ársfundi lífeyrissjóðanna.
  • Vegna þess sem liðið er beinir miðstjórn ASÍ því til fulltrúa launafólks í stjórnum lífeyrissjóðanna að óskað verði þegar í stað eftir því að innri endurskoðendur lífeyrissjóðanna geri sérstaka úttekt á starfsemi þeirra undanfarin ár. Mikilvægt er í þessari skoðun að fá fram skýrar upplýsingar um þátttöku í ferðum eða móttöku á gjöfum. Sérstaklega verði óskað eftir því að ferðir verði flokkaðar eftir því hvort um hafi verið að ræða skemmtiferðir í boði annarra, hreinar fagferðir í boði annarra , embættisferðir á vegum sjóðsins eða ferðir sem sameina einhver eða öll ofangreind einkenni.

Miðstjórn ASÍ telur mikilvægt að ofangreindar upplýsingar verði birtar og gerðar aðgengilegar sjóðfélögum og almenningi.

Í tilkynningu ASÍ segir að miðstjórnin harmi þann fréttaflutning og framsetningu sem fjölmiðlar hafi kosið að nota í umfjöllun um málefni lífeyrissjóðanna, þar sem stjórnir og starfsmenn þeirra séu ómaklega ásökuð um refsiverða framsetningu ársreikninga og réttinda sjóðsfélaga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert