Úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna hefur ákveðið að lækka verð á slægðum og óslægðum þorski, sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila, um 12%. Verð á slægðri og óslægðri ýsu var lækkað um 3%. Verð á karfa var hins vegar hækkað um 10%. Verð þetta gildir frá og með 1. apríl 2009.
Úrskurðarnefndin lækkaði verð á þorski um 10% 1. mars, á ýsu um 5% en verð á karfa var þá óbreytt.