Mikið slasaður eftir líkamsárás

mbl.is/Júlíus

Karlmaður á sextugsaldri liggur mikið slasaður á Sjúkrahúsinu á Akureyri eftir að hann varð fyrir líkamsárás um átta leytið í gærkvöldi. Einn er í haldi vegna málsins og verður hann yfirheyrður í dag.

Að sögn lögreglunnar er maðurinn aðallega slasaður í andliti. Árásin átti sér stað í heimahúsi og var áfengi haft um hönd. Fórnarlambið hringdi sjálft í lögregluna og var hinn grunaði, sem einnig er á sextugsaldri, enn á staðnum. Hann var handtekinn umsvifalaust.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert