Önnur umræða um frumvarp til stjórnskipunarlaga stendur enn yfir á Alþingi. 26 eru á mælendaskrá, allt þingmenn Sjálfstæðisflokksins. Nú stendur yfir umræða um fundarstjórn forseta en sjálfstæðismenn vilja að forsætisráðherra og aðrir leiðtogar stjórnarflokkanna séu í þingsalnum en ella eigi að slíta fundi og halda umræðunni áfram á morgun.
Fram kom að til stæði að halda umræðunni áfram eitthvað fram yfir miðnætti en að henni yrði ekki lokið í nótt.
Umræðan hófst eftir hádegið í dag en á undan fór fram löng umræða um fundarstjórn forseta þar sem sjálfstæðismenn hvöttu til þess, að önnur og mikilvægari mál yrðu tekin á dagskrá en stjórnarskrárfrumvarpið yrði látið bíða. Þingmenn annarra flokka sögðu hins vegar, að stjórnarskrármálið væri afar mikilvægt mál, sem nauðsynlegt væri að afgreiða.