Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sagði á Alþingi í dag að sjálfstæðismenn væru að tefja afgreiðslu brýnna mála á Alþingi.
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hafnaði því. Sagði hann að forsætisráðherrann ætlaði að beita sér fyrir breytingu á stjórnarskránni í ágreiningi í stað þess að fjalla um brýn mál á þinginu.
Jóhanna sagði, að fjórir stjórnmálaflokkar á Alþingi væru sammála þeim breytingum, sem til stæði að gera á stjórnarskránni og um væri að ræða breytingar, sem lengi hefði verið ræddar á Alþingi. Jóhanna sagði það vissulega óvenjulegt að stjórnarskrá sé breytt þótt ekki sé samkomulag um það en greinilegt sé að Sjálfstæðisflokkurinn sé andvígur nauðsynlegum lýðræðisbreytingum.