Karlmaður sem játað hefur íkveikju í Vestmannaeyjum hefur beðist lausnar frá störfum fyrir Slökkvilið Vestmannaeyja og Björgunarfélag Vestmanneyja. Í yfirlýsingu er harmað að maðurinn hafi brugðist því mikla trausti sem borið var til hans.
Yfirlýsingin í heild:
„Í ljósi undangenginna atburða og umræðna sem þeim hafa fylgt, vilja
starfsmenn Slökkviliðs Vestmannaeyja og meðlimir Björgunarfélags
Vestmannaeyja koma eftirfarandi á framfæri.
Við hörmum að þeir
einstaklingar, sem nú hafa játað aðild sína að brunanum s.l. miðvikudag
og með okkur störfuðu, skuli hafa brugðist því mikla trausti sem borið
var til þeirra í störfum sínum.
Það skal tekið fram að aðeins einn af einstaklingunum þremur tengist bæði slökkviliðinu og Björgunarfélaginu. Hann var fullgildur meðlimur Björgunarfélagsins en hafði aðeins starfað með slökkviliðinu í tæpa fimm mánuði og því á reynslutíma. Annar einstaklingurinn stundaði nýliðaþjálfun hjá Björgunarfélaginu og hafði sýnt mikinn áhuga á starfi slökkviliðsins. Hann fékk leyfi til að sækja nokkrar æfingar með félaga sínum til að kynnast starfinu. Hann hafði hins vegar ekki aldur til að starfa með slökkviliðinu. Þriðji einstaklingurinn tengist hvorki slökkviliðinu né Björgunarfélaginu á nokkurn hátt.
Hvað varðar umræðu undanfarna daga um stöðu umræddra einstaklinga innan félaganna, þá var ákveðið að aðhafast ekkert fyrr en málið hefði skýrst og ákveðnar staðreyndir lægju fyrir. Í framhaldi af játningu þeirra og lausn úr varðhaldi óskaði sá sem tengdur er báðum félögunum eftir því að verða leystur frá skyldum sínum sem slökkviliðsmaður og meðlimur í Björgunarfélagi Vestmannaeyja. Þá hefur hinn einstaklingurinn ákveðið að hætta í nýliðaþjálfun hjá Björgunarfélaginu. Með þessu teljum við lokið frekari aðkomu og umræðu okkar um málið í fjölmiðlum.
Það er von okkar að umræddir atburðir hafi ekki rýrt traust almennings á slökkviliðinu og björgunarfélaginu. Við teljum mikilvægt að viðhalda góðu samstarfi við fyrirtæki og einstaklinga og vonum að sá mikli velvilji sem okkur hefur verið sýndur undanfarin ár haldist óbreyttur.“