Lögreglan á Selfossi fékk í síðustu viku tilkynningu um að rimlahlið á Laufskálabyggðavegi við Hrunaveg væri horfið. Hliðið hafði verið tekið upp í haust leið og lagt í vegkantinn.
Lögreglan segir, að nú í vetrarlok hafi menn veitt því athygli að hliðið sé horfið en verðmæti þess er talin vera á sjöttahundrað þúsund króna. Þeir sem veitt geta upplýsingar um hliðið eru beðnir að hringja í síma lögreglu 480 1010.