Nýtt varðskip sjósett fljótlega

Tölvuteikning af nýju varðskipi, Þór
Tölvuteikning af nýju varðskipi, Þór

Nýtt varðskip Landhelgisgæslunnar verður sjósett  29. apríl nk. í Asmar skipasmíðastöð sjóhersins í Chile.  Verkið hefur gengið vel og allar kostnaðaráætlanir hafa hingað til staðist.   Samkvæmt smíðasamningi nemur kostnaður 30 milljónum evra.  Áætluð afhending skipsins er við upphaf næsta árs. 
 
Skipið er af Harstad gerð og hannað af Rolls Royce Marine í Noregi, að því er segir í tilkynningu. Skipið er 4.250  brúttótonn, 93,65 metrar að lengd og 16 metra breitt.  Dráttargeta er 120 tonn og ganghraði 19,5 sjómílur.  Skipið er búið tveimur 4.500 kw aðalvélum.  Til samanburðar má nefna að varðskipið Týr er 71 metra langt og 10 metra breitt með 56 tonna dráttargetu.
 
Við sjósetningu verður skipinu gefið nafn og varð nafnið Þór fyrir valinu en skip Landhelgisgæslunnar hafa áður borið það nafn. 

Fyrsta björgunarskipið sem kom til landsins bar nafnið Þór en það var upphaflega keypt af Björgunarfélagi Vestmannaeyja þann 26. mars árið 1920 til björgunarstarfa við Vestmannaeyjar en varð svo síðar upphafið að stofnun Landhelgisgæslunnar árið 1926.  Varðskip í þjónustu Landhelgisgæslunnar hafa borið þetta nafn frá þessum tíma og allt til ársins 1972. 

Nafnið fór svo úr eigu Landhelgisgæslunnar til útgerðarfélagsins Stálskipa ehf í Hafnarfirði en Guðrún Lárusdóttir framkvæmdastjóri þess fyrirtækis hefur heimilað Landhelgisgæslunni að nýta nafnið.  Útgerðarfélag Guðrúnar gerir meðal annars út togarann Þór HF4.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert