Grundvallarmisskilningur er að skuldastaða þjóðarinnar geti leitt til þess að orkulindir verði teknar upp í skuld, eða seldar með einhverjum hætti. Þetta segir utanríkisráðherra, Össur Skarphéðinsson, á vefsvæði sínu í kvöld. Til að það geti gerst þarf Alþingi að fella Orkulögin svonefndu úr gildi.
Össur tekur þetta fram vegna erinda Michael Hudson og John Perkins sem m.a. komu fram í Silfri Egils í gærdag. Þar sögðu þeir m.a. að vegna gríðarlegra skulda þjóðarinnar og ofríkis Alþjóðagjaldeyrissjóðsins blasi við að þjóðin muni missa orkuauðlindir sínar í gin erlendra auðhringa.
„[N]ýju orkulögin koma algerlega í veg fyrir að hægt sé að selja, eða taka upp í skuld, orkuauðlindir almennings í forsjá hins opinbera. Miðað við lætin sem urðu þegar orkulögin voru samþykkt þótti mér með ólíkindum að upplýstur fjölmiðlamógúll á borð við Egil Helgason skuli ekki hafa bent þeim Perkins og Hudson á þennan grundvallarmisskilningi og vanþekkingu, sem þessi staðhæfing þeirra byggði á,“ segir Össur Skarphéðinsson.