Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segir gjaldeyrishöftin ekki leka eftir að sett voru ný lög Alþingis um hert gjaldeyrishöft. Steingrímur segir aðrar ástæður fyrir veikingu krónunnar. Hann getur hins vegar ekki skýrt þær ástæður. Þetta sagði Steingrímur við spurningu blaðamanns á vikulegum fundi ríkisstjórnarinnar.