Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins kom saman í dag vegna frétta, sem bárust í gærkvöldi um að flokkurinn hefði í árslok 2006 þegið 30 milljóna króna styrk frá FL Group. Fundinum er lokið og er gert ráð fyrir að forustumenn flokksins tjái sig um málið síðar í dag.