Fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eru fullar eftir töluverðar annir í gær. Töluvert af fólki fagnaði því í miðbæ Reykjavíkur að páskarnir væru framundan en frí er í skólum í dag og á flestum vinnustöðum. Lögreglan þurfti að hafa afskipti af fimm líkamsárásum í miðbænum. Enginn slasaðist alvarlega í þessum árásum, að sögn vaktstjóra í lögreglunni.
Þá voru fjórir teknir ölvaðir við akstur. Einn var stöðvaður á 145 kmh. á Kringlumýrarbraut þar sem hámarkshraði er 80.