Alvarleg líkamsárás á Vesturgötu

Alveg líkamsárás átti sér stað í nótt á Vesturgötu í …
Alveg líkamsárás átti sér stað í nótt á Vesturgötu í Reykjavík þegar tveir menn gengu í skrokk á táningsstúlku.

Alvarleg líkamsárás átti sér stað í nótt á Vesturgötu í Reykjavík þegar tveir menn gengu í skrokk á táningsstúlku. Fyrrverandi kærasti stúlkunnar og annar maður voru handteknir í nótt vegna árásarinnar og gistu fangageymslur. Mennirnir brutu sér leið inn á heimili hennar og gengu í skrokk á henni, en stúlkan er aðeins nítján ára gömul.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var stúlkan með skerta meðvitund og var flutt með sjúkrabíl á slysadeild Landspítalans í Fossvogi. Stúlkan hlaut áverka á höfði, andliti, höndum og fótum. Mennirnir tveir verða yfirheyrðir í dag vegna málsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert