Ákveðið hefur verið að sr. Gunnar Björnsson taki við embætti sínu í Selfossprestakalli 1. júní en ekki 1. maí eins og áður hafði verið tilkynnt. Var þessi ákvörðun tekin í samráði við Gunnar.
Settur sóknarprestur, sr. Óskar Hafsteinn Óskarsson, mun þjóna prestakallinu út maí og annast fermingar sem áformaðar eru í maí.