Hópur fólks hefur safnast saman fyrir framan Vatnsstíg 7 þar sem hústökufólk hefur lokað sig inni, en stuðningsmótmæli hófust nú síðdegis. Hústökufólkið hefur verið beðið um að víkja úr húsinu og fékk það frest til kl. 16 að gera það. Lögreglan er með málið til skoðunar, en hún er hins vegar ekki með neinn mannskap á svæðinu.