22 handteknir á Vatnsstíg

Verið að fara með hústökufólk niður á lögreglustöð.
Verið að fara með hústökufólk niður á lögreglustöð. mbl.is/Júlíus

Tuttugu og tveir voru handteknir í aðgerð lögreglunnar á Vatnsstíg í Reykjavík í morgun. Þar hafði hópur fólks komið sér fyrir í óleyfi í húsi við götuna og neitaði að yfirgefa það þrátt fyrir fyrirmæli lögreglu.  Um var að ræða fimmtán karla og sjö konur en fólkið er flest á þrítugsaldri, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

Hinir handteknu voru fluttir á lögreglustöð til yfirheyrslu. Við aðgerðina í morgun naut lögreglan á höfuðborgarsvæðinu aðstoðar lögreglumanna frá embætti ríkislögreglustjóra.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert