Búið að opna Hrafnseyrar- og Dynjandisheiði

Búið er að opna Hrafnseyrarheiði og er hálka þar og einnig Dynjandisheiði og eru hálkublettir þar, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Vegir á Suður- og Suðausturlandi eru auðir. Á Vesturlandi eru hálkublettir í Svínadal og á Bröttubrekku en hálka á Holtavörðuheiði og á Laxárdalsheiði.

Á Vestfjörðum eru hálkublettir á örfáum köflum en hálka er á Steingrímsfjarðarheiði. Hálkublettir eru á Ströndum.

Það er hálka, krapi og snjóþekja á Norðurlandi og þoka við Eyjafjörð. Hálkublettir eða snjóþekja er á Norðausturlandi, bæði yfir fjöllin og eins með ströndinni frá Öxarfirði að Vopnafirði - og á Vopnafjarðarheiði. Hálkublettir eru á Vatnsskarði eystra og á Breiðdalsheiði en vegir á Austurlandi eru þó víðast hvar auðir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert