Velferðarmál í brennidepli

Frá fundi ÖBÍ og Þroskahjálpar um félags- og tryggingamál.
Frá fundi ÖBÍ og Þroskahjálpar um félags- og tryggingamál. mbl.is/Kristinn

„Hvernig ætlar þinn flokkur að verja velferðina?“ er yfirskrift lokafundar ÖBÍ og Þroskahjálpar í fundaröðinni verjum velferðina. Formenn flokkanna eða forsvarsmenn þeirra sitja fyrir svörum um áherslur og forgangsröðun í velferðarmálum.

Þetta er sjötti og síðasti fundurinn í fundaröðinni Verjum velferðina! sem haldinn er af Öryrkjabandalagi Íslands og Landssamtökunum Þroskahjálp í aðdraganda Alþingiskosninga 2009.

Frummælendur á fundinum verða þau, Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra og þingmaður Vinstri grænna, Bjarni Benediktsson, alþingismaður og formaður Sjálfstæðisflokksins, Guðjón Arnar Kristinsson, alþingismaður og formaður Frjálslynda flokksins og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins.

Pallborðsumræður verða að loknum framsögum, þar sem frummælendur ásamt Þráni Bertelssyni fyrir hönd Borgarahreyfingarinnar og forsvarsmönnum ÖBÍ og Landssamtakanna Þroskahjálpar sitja fyrir svörum.

Fundurinn verður haldinn á Grand hóteli Reykjavík í kvöld og hefst klukkan 20:00. Fundurinn er öllum opinn. Táknmálstúlkar og tónmöskvakerfi verða á staðnum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert