Ökumaður jeppa var fluttur á slysadeild Landspítala rétt fyrir klukkan sex í morgun eftir umferðarslys á Reykjanesbraut, norðan við Sprengisand. Að sögn lögreglu eru tildrög að mestu ókunn en talið er að ísing hafi verið á veginum. Ekki hafa fengist upplýsingar um líðan mannsins, en hann var fluttur á slysadeild með meðvitund.