Er Árni Þór Sigurðsson þingmaður Vinstri grænna í raun Soffía frænka? Og giftist hann þá slökkviliðsstjóranum Kasper? Þetta var rætt á þingi í morgun.
Sigurður Kári Kristjánsson krafðist svara við því hversu mikið VG vildi hækka skatta og hversu mikið flokkurinn vildi lækka launin. Árni Þór sagðist vera að taka til eftir ræningjana.
Gunnar Svavarsson sem gaf í skyn að hann væri betur lesinn í Thorbjörn Egner og varaði við þeim pólitísku skilaboðum sem gætu falist í því að líkja sér við Soffíu frænku.
Sjá MBL sjónvarp.