Tvö eru í framboði til formanns Blaðamannafélags Íslands en aðalfundur fer fram miðvikudaginn 22. apríl nk. Framboðsfrestur til formennsku rann út á miðnætti. Að sögn Hjálmars Jónssonar, framkvæmdastjóra BÍ, stendur valið á milli Þóru Kristínar Ásgeirsdóttur blaðamanns á Morgunblaðinu og varaformanns BÍ og Kristins Hrafnssonar fréttamanns.
Líkt og kom fram í gær gefur Arna Schram, formaður Blaðamannafélags Íslands, ekki kost á sér til áframhaldandi formennsku í félaginu. Arna hefur verið formaður í tæp fjögur ár, en sjálfkjörið hefur verið í embættið frá 2003.