Landssamband smábátaeigenda fagnar áformum sjávarútvegsráðherra um frelsi til handfæraveiða en að sama skapi lýsir félagið vonbrigðum með að ætlunin sé að leggja byggðakvóta af.
Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, kynnti í gær hugmyndir sínar að nýju veiðikerfi, strandveiðum. Steingrímur J. hyggst leggja fyrir Alþingi frumvarp strax að loknum kosningum þar sem úthlutun á byggðakvóta á yfirstandandi fiskveiðiári verður frestað og veiðiheimildir sem til hans eru ætlaðar nýttar í fyrirhuguðu strandveiðikerfi.
Þessum breytingum er ætlað að skapa svigrúm fyrir breytta stefnu til styrkingar og örvunar atvinnustarfsemi í sjávarbyggðum. Í áformuðu strandveiðikerfi verður bátum minni en 15 brt. heimilt að stunda frjálsar handfæraveiðar á tímabilinu frá 1. maí til 31. ágúst. Í veiðikerfinu verður aflamagn takmarkað af þeim heildarafla sem ráðstafað verður hverju sinni. Einnig verður fjöldi handfærarúlla á hvern bát takmarkaður, eingöngu verður heimilt að stunda veiðar á virkum dögum og hver dagróður má að hámarki vara í 12 klukkustundir.
Landssamband smábátaeigenda minnir í þessu sambandi á ályktanir síðasta aðalfundar sambandsins en þar er meðal annars lagt til að handfæraveiðar verði gefnar frjálsar og að stjórnvöld standi vörð um byggðakvóta.