Starfsfólk stjórnstöðvar Icelandair á Keflavíkurflugvelli fékk í gær viðurkenningu fyrir nýtt met í stundvísi félagsins. Á fyrstu þremur mánuðum ársins komu og fóru farþegaþotur Icelandair á réttum tíma í 92,6% tilvika. Fyrra metið var sett árið 2003 en það var 84,7% stundvísi. Meðaltal hjá flugfélögum innan Samtaka evrópskra flugfélaga, AEA, var 68,3% til 80,4% eftir lengd fluga á þessum sama árstíma á síðasta ári.
„Stundvísi er einn af höfuð áhersluþáttum í rekstri Icelandair,“ segir Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair.
Stundvísi flugfélaga er mæld með þeim hætti að ef innan við 15 mínútur líða á milli áætlunartíma og raunverulegrar brottfarar frá hliði telst flugvélin hafa farið á réttum tíma. Flestar seinkanir eru innan við 30 mínútna langar.
„Utanaðkomandi óviðráðanlegir þættir eins og veður, önnur flugumferð og bilanir hafa jafnan áhrif á stundvísina og hvað þetta varðar höfum við verið heppin í vetur. En við hjá Icelandair höfum einnig gert átak til að auka stundvísi og á síðasta ári tók til starfa ný stjórnstöð Icelandair á Keflavíkurflugvelli, Network Control Center, sem hefur það m.a. að markmiði að reka leiðakerfi félagsins frá degi til dags, fyrirbyggja hugsanlegar tafir og bregðast hratt við óvæntum uppákomum. Við sjáum góðan árangur af þessum breytingum og þessar stundvísitölur Icelandair í vetur eru fáséðar hjá flugfélögum“, segir Birkir Hólm.