Annarri umræðu um frumvarp til stjórnskipunarlaga var hætt á Alþingi á fjórða tímanum en þá voru enn nokkrir þingmenn á mælendaskrá. Nú er verið að ræða um þingmannafrumvarp, sem gerir ráð fyrir því að kaup á vændi verði gerð refsiverð. Meirihluti allsherjarnefndar þingsins hefur lagt til að frumvarpið verði samþykkt.