Kaupfélag Skagfirðinga verður 120 ára sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 23. apríl næstkomandi. Í tilefni dagsins býður félagið öllum héraðsbúum og fleiri gestum til veislu. Félagið fagnar fleira en afmælinu þennan dag, því nýtt verkstæðishús verður tekið í notkun.
Afmælisveislan verður haldin í nýju 3.300 fermetra
verkstæðishúsnæði félagsins á Eyrinni á Sauðárkróki. Húsið verður
formlega tekið í notkun við þetta tækifæri og sýnt gestum. Á dagskrá
verður ýmislegt til hátíðabrigða, meðal annars tónlistarflutningur á
skagfirska vísu.