Skútan fundin - 3 handteknir

Skútan, sem Landhelgisgæslan stöðvaði í kvöld. TF-SYN, flugvél Landhelgisgæslunnar, fylgir …
Skútan, sem Landhelgisgæslan stöðvaði í kvöld. TF-SYN, flugvél Landhelgisgæslunnar, fylgir henni eftir. mynd/LHG

Varðskipið Týr stöðvaði kl. 22:35 í kvöld för seglskútu djúpt út af SA-landi vegna gruns um stórfellt fíkniefnabrot. Sérsveitarmenn fóru frá varðskipinu um borð í skútuna og handtóku þrjá menn sem voru að því loknu færðir um borð í varðskipið. Varðskipið mun færa skútuna til hafnar á Íslandi.

Um er að ræða sameiginlega aðgerð Landhelgisgæslunnar, lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, lögreglunnar á Eskifirði og sérsveitar ríkislögreglustjóra sem hófst með handtöku þriggja manna á Austurlandi í gærkvöldi. Þeir hafa verið úrskurðaðir í þriggja vikna gæsluvarðhald.

Sérsveitarmenn síga úr þyrlu niður í varðskipið Tý.
Sérsveitarmenn síga úr þyrlu niður í varðskipið Tý. mynd/LHG
Varðskipið Týr.
Varðskipið Týr. mbl.is/Sverrir
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert