Lögreglumenn komu í síðustu viku tvívegis að ungum mönnum sem höfðu farið í óleyfi, utan opnunartíma, inn á sundlaugarsvæði sundhallar Selfoss. Í öðru tilvikinu voru tíu menn á laugarsvæðinu og fimm í hinu.
Að sögn lögreglunnar verða mennirnir allir kærðir fyrir hegningarlagabrot með því að fara inn á þeim óheimilan stað.