Fjögur dökk- og grímuklædd ungmenni gengu inn á kosningaskrifstofu Sjálfstæðisflokksins við Ármúla um kl. 13:30 í dag og slettu skyri og málningu út um allt. Að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu komst fólkið undan.
Þá segir lögregla að mjög sóðalegt hafi verið um að litast á skrifstofunni. Ljóst sé að einhverjar skemmdir hafi orðið á húsbúnaði sem og öðru sem varð fyrir slettunum.
Fyrr í dag var skyri einnig slett inni á kosningaskrifstofu Samfylkingarinnar í Firðinum í Hafnarfirði.