Tannlæknakostnaður hér á landi er mörgum barnafjölskyldum þung byrði og næstum ofviða og hafa um fimmtán þúsund manns skráð sig á hóp á Facebook sem krefst ókeypis tannlækninga fyrir börn, að því er segir í tilkynningu frá aðstandendum síðunnar.
„Skelfilegar fréttir af ástandi mála koma nú upp á yfirborðið þegar börnum er boðið á Tanngarð tannlæknadeildar í ókeypis meðfer á vegum tannlæknafélagsins. Um þetta ástand ríkir alger þögn bæði fjölmiðla og stjórnmálamanna. Á Norðurlöndum er þjónusta tannlækna ókeypis fyrir börn yngri en 18 ára.
Hér þurfa foreldrar að borga allt að 50% af kostnaði við tannlækningar barna sinna. Sem veldur því aftur að tannheilsa barna hér er ein sú versta á Norðurlöndunum eins og fyrrnefndt dæmi sannar. Tannréttingar eru sér kapítuli. Foreldrar fá fasta greiðslu frá ríkinu í styrk, allt að 150.000 kr. En tannréttingar kosta að meðaltali um 900.000 kr. og geta hlaupið á milljónum. Þó um alvarlegt heilsufarslegt vandamál sé að ræða! Þessu vill hópurinn breyta og krefur stjórnvöld svara," að því er segir í tilkynningu.