Slökkviliðið í Reykjanesbæ telur nær öruggt að kveikt hafi verið í fiskvinnsluhúsi í eigu Bakkavarar við Básveg 11 í Keflavík í kvöld. Ekkert rafmagn sé í húsinu og því megi allt að því fullyrða að eldur hafi verið kveiktur í risinu og síðan borist þaðan um húsið.
Á þessu stigi er ekkert vitað um það hverjir voru að verki, en lögreglan í Keflavík hefur málið til rannsóknar.