Fjármálaráðuneytið hefur í samvinnu við skattrannsóknarstjóra og ríkisskattstjóra ákveðið að hafið verði sérstakt átak til að rannsaka hugsanleg brot á skattalögum í tengslum við hrun bankanna og í aðdraganda þess.
Í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu segir, að í viðræðum fjármálaráðuneytisins við skattrannsóknarstjóra og ríkisskattstjóra hafi komið fram að afar brýnt sé að hraða rannsókn hugsanlegra skattalagabrota í tengslum við fall bankanna og í starfsemi þeirra í aðdraganda fallsins, hvort sem er hjá eigendum, stjórnendum eða starfsmönnum bankanna og félaga sem þeim tengist. Í ljósi þess telji þessir aðilar æskilegt að aukinn þungi verði lagður í þetta verkefni hjá stofnunum skattsins og séu sammála um að gert verði sérstakt átak í þessum efnum í samvinnu þessara embætta.
Í framhaldi af þessu hefur því verið beint til skattrannsóknarstjóra og ríkisskattstjóra að hrinda þessu af stað og setja á laggirnar þann starfshóp sem rætt hafi verið um við embættin og að í honum starfi færustu sérfræðingar embættanna á þessu sviði.
Fjármálaráðuneytið segir, að í kjölfar hruns bankanna í október á síðastliðnu ári hafi stjórnvöld brugðist við með ýmsu móti í því markmiði að rannsaka hvað úrskeiðis fór í aðdraganda þess og hvort einhver þau brot hafi verið framin er varði refsingu. Þannig hafi verið sett á fót rannsóknarnefnd Alþingis og embætti sérstaks saksóknara með aðkomu erlendra sérfræðinga, auk þess sem Fjármálaeftirlitið hafi verið eflt verulega.
Auk þessa verkefnis verður á næstunni í samvinnu við skattyfirvöld unnið að breytingum á starfsemi stofnana þeirra með það að markmiði að efla skatteftirlit og skattrannsóknir einkum að því er tekur til eftirlits með skattalegum þáttum fjármálastarfsemi og alþjóðlegra viðskipta.