Breytt reglugerð um leigubíla og ökukennslu

Taxi
Taxi Jim Smart

Fjármálaráðherra gaf í dag út reglugerð um breytingu á skilyrðum rétthafa til lækkunar á vörugjaldi af leigubílum og bílum ætluðum til ökukennslu. Samvæmt 15. grein hennar skal vörugjald af slíkum bílum lækka hafi rétthafi í tekjur að lágmarki 70% af reiknuðu endurgjaldi staðgreiðslu, skv. viðmiðunarreglum sem fjármálaráðherra gefur út.

Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að uppfylli rétthafi ekki sett skilyrði ber honum að endurgreiða mismuninn á fjárhæð vörugjalds sem greitt var og þeirri fjárhæð sem borið hefði að greiða ef ekki hefði komið til lækkunar. Hingað til hefur ekki verið heimild til að fallast á lægra reiknað endurgjald vegna sérstakra aðstæðna rétthafa sem í vissum tilvikum hefur komið hart niður á rétthöfum, t.d. vegna veikinda eða ef bifreið ónýtist.

Með þeirri breytingu á reglugerðinni sem gefin var út í dag er tollstjóra veitt heimild til að fallast á lægra endurgjald en viðmiðunarreglur fjármálaráðherra kveða á um, enda liggi fyirr viðhlítandi gögn og rökstuðningur rétthafa sem réttlætt getur slíka ákvörðun. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert