Dráttarvextir lækka um 1,5 prósentustig

Grunnur dráttarvaxta hefur lækkað um 1,5 prósentur frá síðustu dráttarvaxtaákvörðun úr 17,0% í 15,5%. Dráttavextir lækka því 1. maí 2009 um 1,5 prósentur og verða 22,5% fyrir tímabilið 1. maí - 31. maí 2009.

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum. Frá og með 1. maí 2009 breytast vextir frá síðustu vaxtaákvörðun sem tók gildi 1. apríl sl. Vextir eru því eftirfarandi: Óverðtryggð lán 18,0%, skaðabótakröfur 12,0% og verðtryggð lán 5,9%.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert