Strætóferðir um Héðinsfjarðargöng á morgun

Héðinsfjarðargöng
Héðinsfjarðargöng mbl.is/Halldór Þ. Halldórsson

Fjallabyggð mun á morgun, í samvinnu við Metrostav, bjóða íbúum sveitarfélagsins uppá strætóferðir á milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar í gegnum Héðinsfjarðargöng. Farið verður á klukkustundar fresti frá báðum stöðum. Fyrsta ferð verður kl. 13:00 og sú síðasta kl. 17:00.

Hægt verður að stoppa og fá sér kaffi, fara í sund eða heimsækja söfnin og taka annan „strætó“ heim.

Í tilkynningu Fjallabyggðar segir að farið verði frá Tjarnarborg í Ólafsfirði og Torginu á Siglufirði. Stoppað verður í Héðinsfirði stutta stund í hverri ferð. Einkabílar geta farið í gegn samhliða rútuferð, en skilyrt er að það séu Diesel Jeppar.

Opið verður í söfnum sveitarfélagsins í tilefni dagsins. Sundlaugarnar verða opnar og veitingastaðir í báðum bæjarfélögum munu hafa opið. Einnig mun frumkvöðlasetur Rauðku verða opið. Þar býðst gestum og gangandi færi á að kynna sér starfssemi Rauðku og bera augum hluta ljósmyndasafns SKSigló.

Sjá nánar á vef Fjallabyggðar

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert