Hálka og skafrenningur eru á holtavörðuheiði, samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar. Hálkublettir eru í Heydal, á Bröttubrekku, í Miðdölum og á Svínadal.
Þá eru hálkublettir nokkuð víða á Vestfjörðum. Þæfingur er á Steingrímsfjarðarheiði en mokstur er í gangi.
Sömuleiðis eru hálkublettir og skafrenningur á Ennishálsi, Þungfært og skafrenningur er á Klettshálsi og ófært er á Dynjandisheiði, Hrafnseyrarheiði og Eyrarfjalli. Á norðanverðum Ströndum er þungfært en mokstur stendur yfir.
Þungfært er um Klettsháls en mokstur stendur yfir.
Hálka er á Þverárfjalli og snjóþekja á Siglufjarðarvegi. Hálkublettir eru á Vatnsskarði.
Snjóþekja er í kringum Mývatn og á Tjörnesi. Hálkublettir eru á Öræfum.