Engin viðskipti voru á gjaldeyrismarkaði í dag og er gengisvísitala krónunnar 225 stig. Gengi Bandaríkjadals er 130,12 krónur, pundið 191,04 krónur, evran 171 króna og danska krónan 22,95 krónur, samkvæmt upplýsingum frá gjaldeyrisborði Íslandsbanka.