Mótorhjól og tengivagn rákust á

Lögreglan
Lögreglan

Mótorhjól og tengivagn lentu í árekstri upp við Rauðavatn um níu leytið í kvöld. Ekill mótorhjólsins datt í götuna og varð fyrir minniháttar meiðslum, að sögn lögreglu höfuðborgarsvæðisins. 

Þá brann númerslaus bíll á Gufunesvegi í kvöld. Grunur leikur á að kveikt hafi verið í bílnum, að sögn lögreglunnar. Slökkviliðið kom á vettvang og slökkti eldinn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert