Ekki útilokað að flensan berist hingað

Horft yfir Keflavíkurflugvöll.
Horft yfir Keflavíkurflugvöll. mbl.is/ÞÖK

Ekki er útilokað að svínaflensan geti borist hingað til lands með ferðamönnum en Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur enn sem komið er ekki talið ástæðu til að hækka viðbúnaðarstig sitt vegna svínainflúensunnar og vegna þess hve upplýsingar eru af skornum skammti og því er á þessari stundu ekki mælt með ferðatakmörkunum. Þetta kemur fram á vef landlæknisembættisins.

Hér á landi eru unnið samkvæmt nýlegri áætlun vegna heimsfaraldurs inflúensu sem unnin var af sóttvarnalækni og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra  á árunum 2006–2008.  Samkvæmt þessari áætlun skal auka samráð og samvinnu þegar vá er fyrir dyrum.  Einnig skal upplýsa alla hlutaðeigandi.   Upplýsingamiðlun ásamt söfnun upplýsinga erlendis frá er verkefni dagsins og hafa fundir staðið yfir í dag.  Fleiri fundir eru boðaðir á morgun. 

 Nýtt afbrigði svínainflúensuveiru sem hefur greinst í mörgum ríkjum Bandaríkjanna og í Mexíkó inniheldur erfðaefni frá svína-, fugla- og mannainflúensu. Svínainflúensa hefur verið þekkt sl. 50 ár og þegar hún hefur borist í menn frá svínum hefur hún valdið samskonar einkennum í og venjuleg inflúensa og yfirleitt ekki borist manna á milli.

Það sem er óvenjulegt við þessa svínainflúensu er að hún getur borist frá manni til manns og virðist valda skæðum sjúkdómi í Mexíkó en vægum sjúkdómi í Bandaríkjunum. Svínainflúensan sem um ræðir er af A stofni H1N1. Blöndun virðist hafa átt sér stað milli erfðaefnis frá svínastofnum frá Vesturheimi og Evrópu, mannainflúensu og einnig fuglainflúensu.

Í Evrópu hefur enn sem komið er greinst eitt tilfelli á Spáni með tengsl við Mexíkó, en önnur tilfelli hafa enn sem komið er ekki verið staðfest annars staðar Evrópu. Ekki  er útilokað að veiran geti borist hingað til lands með ferðamönnum. Einkenni svínainflúensu eru skyndilegur hiti, vöðvaverkir og einkenni frá öndunarfærum. Einkenni svínainflúensunnar í Mexíkó virðast vera skæðari en annars staðar og eru að auki í sumum tilfellum með uppköstum og niðurgangi.

Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) í samvinnu við sóttvarnastofnanir í Bandaríkjunum (CDC) og Evrópu (ECDC) ásamt framkvæmdastjórn ESB hafa með sér náið samstarf við að fylgjast með og meta stöðuna. Íslendingar fá upplýsingar frá WHO og hafa jafnframt nána samvinnu við ECDC og ESB um vöktun og viðbrögð.   Allar nýjar upplýsingar eru metnar og skoðað hvort bregðast þurfi við. 

Tekið skal fram að þau inflúensulyf sem aflað hefur verið til landsins eru virk gegn svínainflúensunni en bóluefni sem veitt getur vörn er enn ekki tiltækt en verið er að reyna að hefja framleiðslu þess, að því er fram kemur á vef landlæknisembættisins.

Svo virðist sem smitleið veirunnar á milli manna sé með úða og dropum frá öndunarfærum og því mælt með því að halda fyrir vitin með pappírshandþurrku við hnerra og hósta og henda notuðum þurrkum strax í poka eða ruslið og spritta eða þvo hendurnar strax á eftir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka