Kona á fertugsaldri hefur verið dæmd í sextíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir ellefu þjófnaðarbrot. Meðal annars var hún sakfelld fyrir að stela áfengi í níu skipti, úr sex Vínbúðum ÁTVR. Konan tók ofast vodkapela en einnig koníak og hvítvín. Henni var gert að greiða ÁTVR rúmar 24 þúsund krónur í skaðabætur.