Alls hafa 155 tilfelli svínaflensu í mönnum verið staðfest en mun fleiri eru í rannsókn. Samkvæmt upplýsingum frá almannavarnadeild og sóttvarnalækni hefur enginn greinst með smit á Íslandi.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin jók viðbúnaðarstig sitt í fimm í gærkvöld. Þetta þýðir meðal annars að aðildarþjóðir WHO eru beðnar um að virkja viðbúnaðaráætlanir sínar vegna svínainflúensunnar. Þessi breyting af hálfu WHO hefur engin áhrif hér, enda viðbúnaðaráætlun þegar virk, og hér er enn unnið á hættustigi (stigi 4).
Í dag verða fundir með viðbragðsaðilum í allan dag þar sem farið verður yfir verkefni sem tilteknum aðilum er falið að leysa á hættustigi.
Haldinn hefur verið samráðsfundur á Keflavíkurflugvelli þar sem upplýsingum var miðlað og ákvarðanataka fór fram. Fræðslufundur með starfsfólki hefur einnig verið haldinn. Ekki verður gripið til innkomuskimunar þar sem fullvíst er talið að slík aðgerð þjóni litlum tilgangi.
Í flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli hefur verið opnuð inflúensumóttaka og er hún mönnuð heilbrigðisstarfsmönnum frá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Ferðamenn eiga þess kost að leita þangað hafi þeir inflúensulík einkenni.
Upplýsingum hefur verið miðlað til heilbrigðisþjónustu og viðbragðsaðila. Heilbrigðisstarfsmenn hafa verið hvattir til þess að senda sýni frá sjúklingum með inflúensulík einkenni til greiningar og leiðbeiningum um notkun veirulyfja hefur verið dreift.
Búið er að koma á sambandi við þá flugrekstaraðila sem koma að því að flytja fólk til landsins. Ætlunin er að afhenda þeim upplýsingablöð um inflúensuna sem dreift verður til flugfarþega.
Alls hafa 10 tilfelli verið staðfest á Spáni, 3 tilfelli í Þýskalandi, 5 tilfelli í Bretlandi, 2 tilfelli í Frakklandi, 19 tilfelli í Kanada, 2 tilfelli á Kosta Ríka, 2 tilfelli í Ísrael, 26 tilfelli í Mexíkó. 1 tilfelli í Perú,14 tilfelli á Nýja Sjálandi og 91 tilfelli í Bandaríkjunum.